Bör Börsson útgáfa 1944 -1945 – 1. útgáfa

Líklega eru fáar bækur til á íslensku sem lýsa jafn skemmtilega nýríkum og fáfróðum athafnamanni og Bör Börsson, enda sló sagan rækilega í gegn er Helgi Hjörvar las hana í útvarp árið 1944. Fundum og mannamótum var aflýst á upplestrartíma og göturnar tæmdust svo helst mætti jafna við Eurovision keppni nútímans og persónur sögunnar voru óspart heimfærðar upp á samtíma Íslendinga.

Höfundur verksins Johan Falkberget, var meðal virtustu skálda sinnar kynslóðar í Noregi á fyrri helmingi þessarar aldar. Saga hans um Bör Börsson kom fyrst út 1920 og var prentuð í mörgum útgáfum. Urðu vinsældirnar slíkar að Falkberget bætti síðar við annarri sögu um Bör.

Fyrsta útgáfa hér á landi kom út í tveimur bindum og komu þær út á árunum 1944 fyrsta bindi og síðari koma árið 1945.

Ástand: gott; Innsíður og binding góð, lausa síðan á bindi 1 orðið þreytt.

kr.9.000

Ekki til á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,100 kg
Ummál 13 × 8 × 20 cm
Blaðsíður:

780 (2 bindi) 1. bindi 374 bls 2. bindi 406 bls

ISBN

Ekkert

Heitir á frummáli

Bør Børson jr.

Kápugerð:

Mjúk kápa

Útgefandi:

Arnarútgáfan

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1944 (1. bindi), 1945 (2. bindi)

Íslensk þýðing

Guðmund Gíslason Hagalín (Þýddi 1. bindi, bls. 5-27), Helgi Hjörvar (þýddi 2. bindi), Karl Ísfeld

Höfundur:

Johan Falkberget

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Bör Börsson útgáfa 1944 – 1. útgáfa – Uppseld”