Saga mannkyns – ritröð AB
Saga mannkyns, ritröð AB, er norrænt verk í 16 bindum sem komu út á árum 1985 – 1994. Verkið var unnið á vegum H. Aschenhougs – útgáfunnar í Osló, og að baki því víðkunnir sagnfræðingar frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi.
Þessi frábæra ritröð er auðlesið nútímaverk og áhersla er lögð á skýra framsetningu og léttan stíl svo að verkið sé auðlesið hverjum sem er. Það er byggt á nýjustu rannsóknum og ritað út frá nútímaviðhorfum í sagnfræði.
Verkið spannar allan heiminn, en viðburðirnir er ekki einungis athugaðir í sjóngleri Evrópumanns eins og oft hefur viljað gerast. Hér nægir ekki að segja frá „konungum og styrjöldum“, heldur er reynt að fjalla um „alla söguna“ – almenning, hversdagslíf, þjóðfélag.
Í þessum 16 bindum eru yfir 6000 myndir – flestar litmyndir – svo og landabréf og litaðir reitir með ákveðnum upplýsingum. Nákvæmar efnis- og nafnaskrá auðvelda notkun verksins sem uppsláttarrits. (heimild: Saga mannkyns)
Þessi 16 bindi heita:
- bindi Í upphafi var … Frá frummanni til fyrstu siðmenningar
Höfundur: Randi og Gunnar Håland, ísl. þýðing: E.J. Stardal, bls. 272, þyngd: 1,285 kg - bindi Samfélög hámenningar í mótun 1200 – 200 f. Kr.
Höfundur: Rudi Thomsen, ísl. þýðing: Gísli Jónsson, bls. 272, Þyngd: 1,285 kg - bindi Asía og Evrópa mætast 200 f.Kr – 500 e.Kr.
Höfundur: Patrick Bruun, ísl. þýðing: Þórhildur Sigurðardóttir, bls. 272, þyngd: 1,285 kg - bindi Trúarbrögð takast á 500 – 1000
Höfundur: Erik Gunnes, ísl. þýðing: Jón Þ. Þór, bls. 272, þyngd: 1,344 kg - bindi Hirðingar og hámenning 1000 – 1300
Höfundur: Knut Helle, ísl. þýðing: Áslaug Ragnars og Jóhannes Halldórsson, bls. 272, þyngd: 1,272 - bindi Evrópa við tímamót 1300 – 1500
Höfundur: Kåre Lunde, ísl. þýðing: Snæbjörn Jóhannsson, bls. 272, þyngd: 1,282 kg - bindi Hin víða veröld 1350 – 1500
Höfundur: Niels Steensgaard, ísl. þýðing: Lýður Björnsson, bls. 272, þyngd: 1,254 kg - bind Ný ásýnd Evrópu 1500 – 1750
Höfundur: Kurt Ågren, ísl. þýðing: Helgi Skúli Kjartansson, bls. 272, þyngd: 1,258 kg - bindi Markaður og menningarheimar 1500 – 1750
Höfundur: Niels Steensgaard, ísl. þýðing: Snæbjörn Jóhannsson, bls. 272, þyngd: 1,260 kg - bindi Byltingatímar 1750 – 1815
Höfundur: Kåre Tønnesson, ísl. þýðing: Vilborg Sigurðardóttir, bls. 272, þyngd: 1,230 kg - bindi Evrópa í hásæti 1815 – 1870
Höfundur: Lars-Arne Norborg, ísl. þýðing: Gísli Ólafsson, bls. 272, þyngd: 1,258 kg - bindi Vesturlönd vinna heiminn 1870 – 1914
Höfundur: Jarle Simensen, ísl. þýðing: Jón Þ. Þór, bls. 272, þyngd: 1,162 kg - bindi Stríð á stríð ofan 1914 – 1945
Höfundur: Henning Poulsen, ísl. þýðing: Gunnar Stefánsson, bls. 272, þyngd: 1,304 kg - bindi Þrír heimshlutar 1945 – 1965
Höfundur: Bo Huldt, ísl. þýðing: Lýður Björnsson, bls. 272, þyngd: 1,356 kg - bindi Til móts við óvissa framtíð 1965 – 1985
Höfundur: Sven Tägil, ísl. þýðing: Gísli Jónsson, bls. 272, þyngd: 1,256 kg - bindi Veröldin breytist 1985 – 1993
Höfundur: Jarle Simensen og Sven Tägil, ísl. þýðing: Egill Jónasson Stardal, bls. 272, þyngd: 1,222
Ástand: gott,
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.