Enid Blyton

Enid Blyton (11. ágúst 1897 – 28. nóvember 1968) var breskur barnabókahöfundur sem er bæði þekkt sem Enid Blyton og Mary Pollock. Hún var ein af vinsælustu  barnabókahöfundum 20. aldar.

Enid Blyton skrifaði fjölmarga bókaflokka um sömu persónurnar og hafa selst yfir 600 milljónum eintaka. Enid er fjórði mest þýddi rithöfundur heims samkvæmt Index Translationum UNESCO (2020)

Ein þekktasta persóna hennar er Doddi (e. Noddy), en upprunalegu Dodda-bækurnar voru samtals 24. Þekktustu verk hennar eru skáldsögur fyrir börn, þar sem börnin sjálf lenda í ævintýrum og takast á við ráðgátur og sakamál og leysa án aðstoðar fullorðna. Þær eru:

  • Ævintýrabækurnar (e. Adventure series), en af þeim komu út 8 bækur á árunum 1944-1950.og fjalla um fjögur börn og páfagaukinn Kíkí; þær skera sig úr að því leyti að helmingur þeirra gerist utan Englands
  • Fimm-bækurnar (e. Famous Five), sem er alls 21 bók, 1942–1963, og fjalla um fjögur börn og hundinn þeirra
  • Dularfullu bækurnar (e. Five Find-Outers and Dog), 15 bækur, 1943–1961, en í þeim skjóta fimm börn þorpslögreglumanninum Gunnari stöðugt ref fyrir rass
  • Leynifélagið Sjö saman (e. Secret Seven), 15 bækur, 1949–1963, félag sjö barna sem leysa sakamál
  • Ráðgátu-bækurnar (e. The Barney Mysteries), 6 bækur, 1949-1959, sögur um þrjú börn og vin þeirra á unglingsaldri sem leysa ráðgátur.
  • Baldintátubækurnar (e. The Naughtiest Girl) og svo Doddabækurnar

(Heimild: Wikipedia, 2020)