Mey yfir myrku djúpi
Ellie Cavanaugh var aðeins sjö ára þegar Andrea systir hennar var myrt á hryllilegan hátt. Það var Ellie sem benti á staðinn þar sem sem lík Andreu fannst og það var vitnisburður hennar sem leiddi til sakfellingar mannsins sem hún var viss um að væri morðinginn.
Þegar hann er látinn laus á skilorði tuttugu árum seinna ákveður Ellie að gera að engu tilraunir hans til að hvítþvo mannorð sitt og varpa sök á aðra og sökkvir sér niður í málið með óvæntum og skelfilegum afleiðingum. Hér veitir metsöluhöfundurinn Mary Higgins Clark einstaka innsýn í sálardjúp geðvillts afbrotamanns en lýsir einnig á meistaralegan hátt áhrifum glæps á samfélagið og þá sem standa næst sakamanninum og fórnarlambinu.
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.