Bókin um viskuna og kærleikann
Dalai Lama, einn fremsti andlegi leiðtogi heimsins, hefur með verkum sínum veitt lesendum um allan heim aðgang að viskubrunni sínum. Í þessari bók gefur hann einföld og hagnýt ráð um það hvernig njóta megi meiri ástar og samhygðar. Kenningar hans byggjast á skynsemi og manngæsku en hvorki á predikunum né þröngsýni. Hann nálgast viðfangsefni sitt af kímni og raunsæi og bendir á hvernig við getum lifað í sátt og samlyndi við aðra. Jafnframt leiðir hann í ljós hvernig breyta megi neikvæðum kenndum eins og reiði í ást eða í hugarró, og hvernig við getum eflt með okkur kærleikann í garð annarra og orðið þannig betri manneskjur. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin um viskuna og kærleikann er skipt niður í 6 hluta, þeir eru:
- Ánægja, gleði og gott líf
- Þegar dauðinn ber að dyrum
- Baráttan við reiði og geðshræringu
- Að gefa og þiggja
- Samhyggð: Grundvöllur mannlegrar hamingju
- Spurningar og svör
Ástand: bæði innsíður og kápa góð
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.