Nostradamus við upphaf nýrra aldar
Nostradamus var án efa mesti spámaður sem uppi hefur verið, og allt frá því að bækur hans komu fyrst út hafa menn fylgst með því er einn spádómurinn af öðrum rætist. Áhuginn á verkum hans hefur aldrei verið meiri en einmitt nú, enda hefur komið í ljós að hann taldi að síðustu ár þessarar aldar myndu marka tímamót í sögunni. Við sem nú lifum, stöndum við upphaf nýrrar aldar sem gæti líka verið upphafið á nýju og betra líf fyrir allt mannkyn.
Spádómsrit Nostradamusar hafa verið túlkuð á ýmsa vegu, en í þessari bók er í fyrsta sinn birt nýtt kerfi sem vinnur á skipulegan hátt úr upplýsingunum sem faldar eru í torræðum textum hans. Verkið er unnið af mikilli þekkingu og nákvæmni, en niðurstöðurnar eru settar fram á einfaldan og hrífandi hátt. Bókin er unnin í samvinnu bókaútgefenda um allan heim og hefur verið vandað til hennar í hvívetna: hana prýðir fjöldi mynda og framsetning efnisins er í senn aðlaðandi og aðgengileg.
Bókin Nostradamus við upphaf nýrra aldar er skipt niður í fimm hluta auk inngangs og dulmálslykill, þeir eru:
- Inngangur
- Eldur Vúlkans – kynning á dulmálslyklinum
- Fyrsti hluti
- Stutt útskýring á dulmálslyklinum
- Annar hluti
- Á vit framtíðar
- þriðji hluti
- Aldamótin nálgast
- Fjórði hluti
- Framtíðin
- Fimmti hluti
- Kerfið útskýrt til hlítar
- Dulmálslykillinn fullgerður
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.