Þorvaldur víðförli – Árni Bergmann
Söguleg skáldsaga
Trúin og ástin – er til meiri áhrifavaldar mannshugans, önnur öfl sem knýja fastar á dyr sálarinnar? Íslendingurinn Þorvaldur víðförli, sem var upp fyrir árþúsundi, þekkir engin slík. Hann slæst ungur í lið með Friðriki trúboðs-biskupi og lendir í mannvígum fyrir Hvítakrist á Íslandi, síðan halda honum engin bönd, hann leitar guðs síns í Noregi og Garðaríki, fer með væringjum um víðáttu Rúss-lands suður til Miklagarðs, er í hernaði, kemur í konungs-hallir, gengur í klaustur, gerist einsetumaður. Guð reynist heldur óþjáll til samræðu, en Þorvaldur finnur að lokum ástina, og enn tekur líf hans breytingum.
Með Þorvaldi víðförla hefur Árni Bergmann skrifað hrífandi sögulega skáldsögu um umbrotatíma í sögu Íslands og Evrópu. Þetta er frásögn sem spannar vítt svið sögustaða og heimspekihugmynda, knýr lesandann til umhugsunar og er einnig spennandi og skemmtileg, saga sem er svo vel saman sett a lesandinn veit stundum ekki hvort heldur hann sjálfur er staddur í fortíðinni eða Þorvaldur víförli í nútímanum. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.