Fley og fagrar árar

Þessi hraðkviki minningaspuni Thors Vilhjálmssonar er skrifaður í svipuðum anda og hin vinsæla bók hans, Raddir í garðinum. Hér kallar eitt atvik á annað, ein mannlýsing kveikir  aðra og ólíkir staðir lifna fyrir augum lesandans. Saman fer kunnur stílgaldur höfundar, skáldlegt auga sem ekki á sinn líka og frásagnargleði mikils sagnamanns.

Öðrum þræði er þessi bók ferðasaga, rétt eins og allar bækur Thors Vilhjálmssonar, sögusviðin víxlast hratt: Róm árið 1968, Vestmannaeyjar 1973, England 1947, Japan 1984 eru meðal fjölmargra staða sem við sögu koma og ttextinn er hafsjór af frjóum athugunum, djúpskyggnum lýsingum á ólíkum samferðamönnum og – skemmtilegum sögum. (Heimild: bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, innsíður góðar

Fley og fagrar árar - Thor Vilhjálmsson

kr.500

1 á lager

Vörunúmer: 8501438 Flokkur: Merkimiðar: , , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,620 kg
Ummál 15 × 3 × 22 cm
Blaðsíður:

300 +teikningar

ISBN

9979314486

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Mál og menning

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1996

Hönnun:

Ingibjörg Eyþórsdóttir (kápuhönnun)

Höfundur:

Thor Vilhjálmsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fley og fagrar árar”