Farsæld er ferðalag
Mótaðu líf þitt og örlög í mikilfenglegt ævintýri
Í þessari bók lýsir hinn kunni fyrirlesari Brian Tracy upphafi velgengni sinnar sem hefst á fjarlægum draumi, að ferðast frá vesturströnd Bandaríkjanna til Höfðaborgar í Suður-Afríku, samtals yfir 27.000 kílómetra vegalengd. Ferð Tracys, yfir láð og lög hafði mikil og varanleg áhrif á hann. Í ferð sinni komst hann að tilgangi lífs síns, lærði mikilvægi hugrekkis, þrautseigju og þeirrar úrslitaákvörðunar að taka fulla ábyrgð á eigin örlögum.
Bókin greinir frá einföldum en nauðsynlegum skrefum sem þú getur stigið núna til að hámarka farsæld þína í lífinu:
- – Leyfðu þér að dreyma.
- – Gerða drauma þína að persónulegum markmiðum.
- – Skilgreindu markmiðin og búðu þig undir að gera atlögu að þeim.
- – Taktu eitt skref í einu.
- – Varastu neikvætt fólk.
- – Þroskaðu með þér þrautseigju og lærðu af mistökunum.
- – Reyndu mismunandi leiðir að takmarkinu.
- – Gefstu aldrei upp!
(Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin eru sjö hlutar sem skiptast niður í 26 kafla, þessir sjö hlutar eru:
- Sýnin og draumurinn
- Upphafið – Stígðu skrefið!
- Hið eiginlega ferðalag hefst að lokum
- Dögun veruleikans
- Aldrei að gefast upp
- Ein tunna í einu
- Litið um öxl – Samantekt
Ástand: gott bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.