Betra sjálfsmat
Lykilinn að góðu lífi
Kjarkur, öryggi, árangur: Allt byrjar þetta með góðu sjálfsmati – og sjálfsmatið á upptök sín innra með þér.
Af öllum þeim skoðunum sem við myndum okkur í lífinu er engin eins mikilvæg og sú skoðun sem við höfum á sjálfum okkur. Viðbrögð okkar við því sem gerist í daglegu lífi eru lituð af því hvernig við skynjun okkar sjálf. Sjálfsmyndin hefur afgerandi áhrif á lífshlaup okkar, vinnu, ástamál, foreldrahlutverk og árangur í lífinu. Hvernig bætum við sjálfsmatið? Hvernig brjótumst við út úr vítahring þeirra vanlíðunar og skaðlegu hegðunar sem sprettur af lélegri sjálfsmynd? Þessi bók er skrifuð til að svara slíkum spurningum.
Í bókinni eru einfaldar, góðar og árangursríkar aðferðir sem umbylta hugsunum oþínum um sjálfan þig.
Þú lærir hvernig þú getur: greitt leiðina til árangurs og ástar, unnið bug á kvíða, þynglyndi, sektarkennd og reiði, losnað við hræðslu við náin sambönd og velgeng og öðlast kjark til að elska sjálfan þig. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin eru ellefu kaflar, þeir eru:
- Mikilvægi góðs sjálfsmats
- Áhrif sjálfsmyndarinnar
- Vakandi sjálfsvitund
- Lærðu að sættast við sjálfan þig
- Að losna við sektarkennd
- Sameining innri þátta
- Taktu ábyrgð á lífi þínu
- Vertu sjálfum þér samkvæmur
- Að næra sjálfsmat annarra
- Hvað er sjálfselska?
- Samantekt
Ástand: gott bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.