Saga bílsins á Íslandi 1904-2004
20. júní 2004 var öld liðin frá því fyrsti bíllinn kom til Íslands. Bókin rekur upphaf bíla og bílaaldar á Íslandi og baráttuna sem þá stóð milli bíla eða járnbrauta. Fylgst er með þróun bílaumboða á Íslandi og umbrotum í bílainnflutningsmálum. Sagt er frá einstæðri björgun 100 vörubíla úr strandi við suðurströndina og frá bílunum sem herir bandamanna skildu eftir hér á landi eftir heimsstyrjöldina síðari. Gefin er hugmynd um útbreiðslu bílsins um landið og þrautseigju frumherjanna í því efni. Fjallað er um þá þróun í flutningatækni sem gert hefur bílinn allsráðandi flutningatæki á Íslandi nú til dags. Allt kryddað með áhugaverðum og lifandi frásögnum. Nær 400 myndir eru í bókinni, þar af um 300 sem ekki hafa áður birst opinberlega. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.