Bangsímon og Busla

Bangsímon, Grislingur og Jakob fara í skemmtigöngu og hafa nesti með sér…

Disney ævintýri en byggð á mynd sem Walt Disney gerði og var fyrst sýnd 4. febrúar 1966 og byggðu þeir mynd sem  sína á bók eftir enska rithöfundinn A. A Milne (f. 18. janúar 1882 – d. 31. janúar 1956). Fyrsta bókin kom út þann 14. október árið 1926 og heitir „Winnie the Pooh“, á frummálinu. Bangsinn ljúfi í sögum Milne dró nafn sitt af leikfangabangsa Christopher Robins, sonar Milne. Nokkrar aðrar persónur í sögum Milne voru skírðar eftir tuskudýrum Robins, svo sem Eyrnaslapi (Eeyore) og Grislingur (Piglet).

Bangsi Robins hét í fyrstu Edward Bear en Robin gaf honum síðan nafnið Winnie eftir birni í dýragarðinum í London sem sonur hans hafði dálæti á. Sá björn var í dýragarðinum frá árinu 1919 til 1934 og kom upphaflega frá Winnipeg í Kanada og dró nafn sitt af borginni, stytt sem Winnie. Nafnið Pooh var upprunalega heiti á svani sem oft sást á landareign Milne. (Heimild: Vísindavefur.is / JGÞ; Wikipedia )

Ástand: kápan er í góðu formi og innsíðurnar góðar.

Bangsímon og Busla - Disneybók

kr.400

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8502169 Flokkur: Merkimiðar: , , , , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,196 kg
Ummál 16,5 × 0,7 × 24 cm
Blaðsíður:

42 +myndir

ISBN

9789979212802

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Heitir á frummáli

How to catch a woozle

Útgefandi:

Vaka Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1998

Íslensk þýðing

Sigrún Árnadóttir

Höfundur:

Walt Disney / A.A Milne (byggða á sögu hans)