Sætar freistingar

Réttast er að segja eins og er – flest erum við veik fyrir sætindum. Við lestur þessarar bókar fær maður svo sannarlega vatn í munninn. Leitið og grúskið – innan um góðgætið hér á síðunum geta allir fundið eitthvað við sinn smekk, bæði hvað varðar bragðskyn og skreytingar

Auk allra gómsætu uppskriftanna að kökum fyrir fullorðna er hér líka að finna kökur fyrir barnaveislur ásamt sérstökum kafla um eftirréttir, og sælgæti, svo sem Mozart-kúlur, trufflur og marenskökur.

Með því að skipta um eða sleppa sumu af hráefninu er alltaf hægt að hanna eftirlætisuppskriftir fyrir sjálfan sig og fjölskylduna. Heimabakaðar kökur koma öllum í gott skap og gera sérhvern dag að hátíðisdegi. (Heimild: bakhlið bókarinnar)

Bókin Sætar freistingar eru skipt í 6 kafla með undirköflum, þeir eru:

  • Hollráð
  • Kökur fyrir fullorðna
    • Unaðsleg súkkulaðikaka
    • Súkkulaðiskreytingar
    • Hjartaterta
    • Haustlaufakaka
    • Stílhrein rifsberjakaka
    • Rúllutertukaka
    • Sumarleg jarðarberjaterta
    • Kríthvítur draumur
    • Spennandi ávaxtabaka
    • Hátíðleg pönnukökuterta
    • Ítölsk ísterta
    • Gómsæt möndlukaka
    • Kaka með marsipanávötum
    • Páskakaka með ferskjum
    • Jólakryddkaka
    • Píparkökuljósker
    • Jólatréskaka
    • Öðruvísi smurbrauðsterta
  • Lítið og ljúffengt
    • Múffur með blómum
    • Súkkulaðimús
    • Trufflur að allra smekk
    • Súkkulaðihjúpaðir ávextir
    • Mozart-kúlur
    • Rósir í gjafaöskju
    • Ferskir ávaxtaeftirréttir
    • Kanilkrásir
    • Konfektkúlur
    • Marenskökur
  • Kökur fyrir krakka
    • Litríkar kökur fyrir börnin
    • Kaka trommuleikarans
    • Höll með turnum
    • Sælgæti með litríku skrauti
    • Eplabaka fyrir unga fólið
  • Grunnuppskriftir
  • Snið

Ástand: gott

Sætar freistingar - Helene S. Lundberg

kr.1.000

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,550 kg
Ummál 21 × 1 × 28 cm
Blaðsíður:

80 +myndir

ISBN

9789979218193

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Heitir á frummáli

Söte fristelser – herlige kaker og annet godt

Útgefandi:

Vaka Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2005

Ljósmyndir:

Fredrik Birkler

Hönnun:

Hvítahúsið (kápuhönnun)

Íslensk þýðing

Solveig Brynja Grétarsdóttir

Höfundur:

Helene S. Lundberg

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Sætar freistingar”