Pétur Ben ævisaga

Pétur Benediktsson (1906–1969) setti á sinni tíð mikinn svip á íslenskt þjóðlíf. Hann var sonur þjóðskörungsins Benedikts Sveinssonar og bræður hans létu mjög að sér kveða: Sveinn í sjávarútvegi og Bjarni í stjórnmálabaráttunni. Um Pétur spunnust ótal sögur enda sópaði að honum og gamansemi hans var þjóðkunn.

Að loknu námi gerðist Pétur frumherji í utanríkisþjónustu hins unga lýðveldis. Hann var einatt á örlagaríkum tímum á hverjum stað – hann var í Madríd á Spáni þegar borgarastyrjöldin geisaði, í London þegar Þjóðverjar létu rigna sprengjum á borgina og í Moskvu á miðjum Stalínstímanum. Hann ferðaðist um stríðshrjáð lönd Mið- og Austur-Evrópu upp úr seinna stríði og gerði viðskiptasamninga. Á eftirtstríðsárunum í París tók hann þ.átt í að útfæra Marshall-aðstoðina. Eftir að heim kom varð Pétur bankastjóri Landsbankans og síðar þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Jakob F. Ásgeirsson notar hér ýmsar heimildir sem ekki hafa áður komið fyrir almenningssjónir, þar á meðal bréf sem fóru á milli bræðranna, Péturs og Bjarna. Um leið og lesandinn kynnist hér skemmtilegum og svipmiklum manni gefst ómetanleg innsýn í íslenska stjórnmálasögu og tíma þegar nútímasamfélag var að mótast hér á landi.. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Pétur Ben ævisaga eru 15  kaflar + viðaukar, þeir eru:

  • Unga Ísland 1906-19*19
  • Órættir draumar – harðvítug stjórnmálabarátta 1919-1930
  • Suður við Eyrarsund 1930-1939
  • Sendiherra í London 1939-1944
  • Sendur til Moskvu 1942-0944
  • Sendiherra í Moskvu 1944-1945
  • Í leit að viðskiptum 1945
  • París – Prag – Varsjá – Moskva 1946-1947
  • Sendiherra í París 1948-1956
  • Með pennann að vopni 1956-1961
  • Bankastjóri Landsbankans 1956-1969
  • „Marbendill og Farísei“
  • Alþingismaður 1967-1969
  • Andlát og eftirmæli
  • Framættir Péturs Benediktssonar
  • Viðauki
    • Tilvísanir
    • Heimildaskrá
    • Nafnaskrá

Ástand: gott

Pétur Ben ævisaga

kr.1.500

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1 kg
Ummál 16 × 4 × 24 cm
Blaðsíður:

415 +myndasíður +línurit

ISBN

9979318147

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Mál og menning

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1998

Hönnun:

Margrét Laxnes (kápa)

Höfundur:

Jakob F. Ásgeirsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Pétur Ben ævisaga”