Öndvegiseldhús Reykjavíkur

Öndvegiseldhús Reykjavíkur er sambland af sögu gestgjafa Reykjavíkur og matreiðsluriti. Menningarspegill bókarinnar er matur og matargerð þar sem lögð er áhersla á hið séríslenska hráefni, ferskleika og hefðir. Í kjölfar sögulegs inngangs eru heimsóttir fimmtán veitingastaðir Reykjavíkur og saga þeirra rakin. Sumir hverjir bera ævintýralegri framsýni manna vitni, svo sem Perlan, en hugmyndir um veitingarekstur á toppi hitaveitutankanna eiga sér lengri sögu en margir þekkja. Aðrir eru reistir á sögufrægum slóðum og geyma löngu gleymdar ástir og átök og enn aðrir hluti af arfleifð fyrri tíma. Menningu veitingahúsanna eru gerð skil og áherslum í matargerð og móttöku gesta. Í kjölfarið eru svo gefnar uppskriftir af þriggja rétta máltíð hvers veitingahúss þar sem íslenskt hráefni er í fyrirrúmi að hætti hússins.

Rammi bókarinnar er gestrisni og matarmenning Reykjavíkur í 200 ár. Greint er frá sögulegri hefð Íslendinga sem gestgjafa og er þar stuðst við fornritin og heimildir úr þjóðháttafræði. Inngangur bókarinnar og meginlesmál fjallar um þróun Reykjavíkur sem menningarborgar og mikilvægi gestgjafans í þeirri þróun. (heimild: mbl.is 20. desember 2003)

Bókin er skipt niður í 18 kafla, þeir eru:

  • Kalt stríð og kaffi
  • Listasafnið á hótel Holti
  • Grillið á Sögu
  • Vox á Nordica hóteli
  • Viðeyjarstofa
  • Rauðará steikhús
  • Þrír frakkar hjá Úlfarei
  • Perlan
  • Argentína steikhús
  • La Primavera
  • Humarhúsið
  • Apótek bar og grill
  • Sommelier Brasserie
  • Einar Ben
  • Hjá Sigga Hall
  • Bæjarins beztu
  • Heimildarskrá
  • Myndaskrá

Ástand: gott bæði innsíður og kápa.

Öndvegiseldhús Reykjavíkur

kr.800

2 á lager

Vörunúmer: 8001010002 Flokkur: Merkimiðar: , , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,382 kg
Ummál 25 × 18 × 1 cm
Blaðsíður:

108

ISBN

9979609087

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Orðspor sf

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2003

Ljósmyndir:

Leifur Rögnvaldsson (ljósm. forsíðu og mat ), Thorsten Henn (ljósm. af nátturu og aðrar myndir)

Höfundur:

Erna Kaaber, Kristinn Hrafnsson (aðstoð við heimildaöflun),Sólveig Bergmann (aðstoð við heimildaöflun)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Öndvegiseldhús Reykjavíkur”