Lögreglustjóri á stríðsárunum – Minningar Agnars Kofoed-Hansens
Þessi bók rekur minningar Agnars Kofoed-Hansens um stríðsárin og er jafnfram ágrip af sögu lögreglunnar í Reykjavík erfiðasta tímabilið sem yfir hana hefur dunið. Bókin er framhald minningarbókarinnarÁ Brattann, 1979. Hún hefst með Þýskalandsdvöl Agnars sumarið 1939, þegar veldi nasistanna stóð sem hæst. Agnar var þar í boði sjálfs Himmlers til að búa sig undir lögreglustjórastarfið. Eftir að Agnar hafði verið lögreglustjóri í nokkra mánuði er landið hernumið, og vandamálin hrannast upp. Árekstrar við herstjórnina út af lögbrotum hermanna; átök við hermennina sjálfa, oft vopnaða; vandamál út af vændi stúlkubarna í herbúðunum, – og þannig mætti lengi telja. við borð liggur að Bretar taki lögreglustjórann hönum og flytji hann í Tower of London, en komið er í veg fyrir það á síðustu stundu. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Minningar Agnars Kofoed-Hansens eru tvö bindi:
1. bindi: Á brattann (1979)
2. bindi: Lögreglustjóri á stríðsárunum (1981)
Bókin Lögreglustjóir á stríðsárunum – Minningar Agnars Kofoed-Hansens eru 26 kafla, þeir eru:
- Til Þýskalands í boði Hilmmlers
- Garður norðan Alpafjalla
- Sköruleg þrenning
- Ræða
- Orka og trú
- Snjóar Snæfellsjökuls
- Það hús
- Tengsl
- Skeyti til Himmlers
- Auglýsing fyrir Þriðja ríkið
- Óskabörn kvödd
- Ólík vandamál
- Varúðarráðstöfun
- Persónulegur gestur Himmlers
- Eðli mólekúla í þágu lögreglurannsókna
- Skelfilegur sannleikur
- Bláköld vísindi
- Kurt Dalüge
- Nótt hinna löngu hnífa
- Æðstu prestar valdsins
- V-laga nekt
- Fallbyssur í stað smjörs
- Upplýsingaflóð á Kurfürstendamm
- Kristalnóttin
- Bretakomplex Þjóðverja
Ástand: gott bæði innsíður og kápuefni.