Fjölskylduhandbók um hjúkrun heima
Veitum líkn með ljúfu gleði
Fjölskylduhandbók um hjúkrun heima er á margan hátt tímanna tákn. Hún endurspeglar m.a. breytt viðhorf almennings til heilbrigðisþjónustunnar. Hinn almenni borgari vill hafa greiðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum og leiðbeiningum er lúta að daglegu líf, fremur en að reiða sig alfarið á ráðleggingar fagfólks innan heilbriðgisþjónustunnar. Hjúkun heima veitir þeim sem annast um veika eða fatlaða á heimilum einmitt aðgang að mikilvægum upplýsingum auk fjölda ráðlegginga.
Bókin á erindi til allra þeirra sem einhvern tímann axla þá ábyrgð að sinna veiku barni, foreldrum, maka eða vinum utan stofnana. Hún á ekki síður erindi til þeirra sem sinna fjölskyldumeðlimum eða vinum sem þarfnast aðstoðar vegna fötlunar. Í bókinn er að finna upplýsingar um starfsemi líkamans, algengar breytingar á henni, viðbrögð einstaklingsins við slíkum breytingum og helstu aðferðir við umönnun. Fjallað er um áhrif veikinda og fötlunar á sjúklinginn og fjölskyldu hans eða hennar. (Heimild: formáli bókarinnar)
Rétt er að benda á það að bók þessi kom út hjá Macmillan í London og hefur notið mikilla vinsælda frá útgáfu hennar 1986. Macmillan er fagteymi í umönnum.
Bókin Fjölskylduhandbók um hjúkrun heima er skipt niður í 11 kafla með undirköflum, þeir eru:
- Sjúkraherbergið
- Umbúnaður
- Að lyfta og hreyfa
- Dagleg umönnun
- Eftirlit með sjúklingnum
- Aðhlynning heima
- Matur og mataræði
- Sérstakar þarfir
- umönnun barna, umönnun eldra fólks, umönnun fatlaðra, umönnun dauðvona
- Læknisfræðilega vandamál
- heili og taugakerfi, hjarta og blóðrás, bein og liðir, húðin, augun, eyru nef og háls, lungun, meltingarfærin, nýru og þvagfæri, kynfærin, kirtlar, smitstjúkdómar, krabbamein og geðsjúkdómar
- Skyndihjálp
- Umönnun almænissjúklingas
- Hvar er hjálp að finna?
- Atriðisorðaskrá
Ástand: gott bæði innsíður og kápa
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.