Ferskt og framandi
Ferskt og framandi hefur að geyma 230 girnilegar uppskriftir. Hér eru uppskriftir að brauði og brauðréttum, salötum og bökum, pastaréttum, hrísgrjóna-, kúskús- og baunaréttum, grænmetisréttum, forréttum og súpum. Hér eru einnig fisk- og skelfiskréttir, lamba-, svína-, ungnauta- og kjúklingakjötsréttir, ábætisréttir og hlaðborðsuppskriftir. (heimild: bakhlið bókarinnar)
bókinni er skipt niður í 13 kafla, þeir eru
- brauð og bakstur
- salöt og bökur
- pasta
- hrísgrjón, baunir og kúskús
- grænmeti
- forréttir og súpur
- fiskur og skelfiskur
- lambakjöt
- svínakjöt
- nautakjöt
- fuglakjöt
- ábætir
- hlaðborð
Auk þess hefur bókin á að geyma upplýsingar sem heita „Svolítið um fágæt hráefni“.
Útgefandinn Nýkaup var samnefnd verslun sem var við líði hér á árum áður.
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.