Útbrunninn?
Farðu betur með þig!
Æ oftar er tekið svo til orða að þessi og hinn sé útbrunninn. Álag í vinnu og heimafyrir, uppsöfnuð þreyta og síðast en ekki síst streita eru í sífellt ríkara mæli talin orsök ýmissa sjúkdóma og andlegrar sem líkamlegrar vanlíðunar. Menn grípa ekki nógu fljótt í taumana – jafnvel þótt þá gruni að ekki sé allt með felldu – og afleiðingarnar láta ekki á sér standa: Fyrr en varir eru þeir útbrunnir.
Hér er komin bók þar sem tekið er á þessum vanda. Höfundarnir, sem eru félagsráðgjafar og hafa auk þess þá slæmu reynslu að hafa gengið mjög á eldsneytisforða sinn, taka fyrir ýmsa orkufreka þætti s.s. vinnuálag, tímaskort, ábyrgð, kröfur og skyldur. Bent er á leiðir til að koma í veg fyrir að menn gangi alvega fram af sér sem og til að byggja þá upp að nýju sem eru útbrunnir. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Útbrunninn? er skipt niður í 15 kafla, þeir eru:
- Að vera útbrunninn – hvað er það?
- Lærðu að skilja og meðhöndla streitu
- Áður en þú lsest lengra
- 1. Þú daufheyrist við aðvörunum líkamans
- 2. Þú færð ekki reglubundna hvíld
- 3. Þú gerir of miklar kröfur til sjálfs þín og annarra
- 4. Þú setur þér ekki markmið og áfanga
- 5. Þú hefur slæma yfirsýn yfir starfið
- 6. Þú færð ekki fylli þína af andlegri næringu
- 7. Þú axlar of mikla ábyrgð
- 8. Þú ert úrræðalaus
- 9. Þú stingur eigin dómgreind undir stól
- 10. Ert þú á rangri hillu í lífnu?
- Lærðu að segja nei
- Hollar venjur
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.