Tarot, vegur viskunnar
Tarotspilin þekkja flestir sem tæki til spádóma og að hluta til sem eldri gerð hins alþekkta leiktækis, 52ja spila stokksins. Í bók þessari er æðri röð Tarot stokksins lýst sem myndrænni frásögn af andlegri vegferð mannsins í átt itl þroska og sameiningar við guðdóminn.
Höfundurinn, Elisabeth Haich er þekktur frumherji á sviði Yoga og rak lengi skóla í Sviss í félagi við M. Yesudian, en þar námu fyrstu Íslendingarnir sem lögðu fyrir sig kennslu í yoga hér á landi. Önnur rit hennar eru Vígslan (Initiation) sem komin er út á íslensku og nokkrar bækur um yoga.
Fyrir þá sem laðast að þessum dularfullu spilum er útlistun hennar á innri merkingu myndanna afar heillandi og rökrétt fylling. Um leið fræðist lesandinn um klassískra táknfræði og tölfræði. Höfundur tekur fram að auk þess sem launsögnin að baki myndanna 22ja kennir, geti iðkandinn nýtt þær til að kanna sitt eigið sálarástand og persónulega þróun. (Heimild: Bakhluti bókarinnar)
Ástand: gott, laus við krot innsíður góðar








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.