Salatréttir
Bókarflokkur: Sælkerasafn Vöku
Salatréttir eru afar fjölbreyttir. Þeir geta verið forréttir, heilar máltíðir eða afbragðs meðlæti.
Í þessari nýju bók Sælkerasafnsins eru kynntar í máli og myndum um 90 uppskriftir að salatréttum, svo sem einföldum og ódýrum hvítkáls- og gulrótaréttum og flóknari réttum til dæmis með skeldýrum og óvenjulegu grænmeti.
Þessi bók ætti ekki að verða síður vinsæl en hinar fyrri í þessum gagnlega og aðgengilega bókaflokki. Hér eru fallegar litmyndir og hverri opnu þannig að hægt er að sjá, hvernig réttirnir líta út fullgerðir.
Reynið salatréttina. Þeir eru bragðgóðir og heilsusamlegir, – en það er líka mjög auðvelt að matreiða þá á örskömmum tíma. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: innsíður góðar og kápan góð
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.