Rjettarstaða Grænlands nýlendu Íslands

Þetta glæsilega verk er doktorsritgerð Dr. Jóns Dúasonar við Háskólann í Osló árið 1928. Doktorsritgerðin er í tveimur hlutum og kom I. bindi út árið 1947 og II. bindi árið 1955 og var Ísafold sem sá um útgáfuna. Bæði bindi hafa verið bundin inn í bókarform.

I. bindi er í tveimur hlutum. Fyrri hluti eru níu hefti en seinni hluti eru fjögur hefti. Samtals 768 blaðsíður
II. bindi eru níu hefti. Samtals 383 blaðsíður

Dr. Jón Dúason heitir fullu nafni Dr Jón Norðmann Dúason (30. júlí 1888 – 5. maí 1967) var íslenskur hagfræðingur og fræðimaður sem hafði einstaka yfirsýn yfir tengsl Íslendinga við Grænland og hélt fram ríkri réttarstöðu Íslendinga til ítaka þar í landi.

Dr. Jón fæddist í Langhúsum í Haganeshreppi í Skagafirði. Hann lauk stúdentsprófi árið 1913 og stundaði nám í samvinnufélagsfræðum (þjóðfélagsfræði) við Hafnarháskóla í Danmörku og Skotlandi. Eftir það stundaði hann hagfræði og varð cand. polyt. í Kaupmannahöfn árið 1919. Hann stundaði því næst nám í bankamálum í Bretlandi og Norðurlöndum og var nokkur ár starfsmaður ríkis og borgar í Höfn. Árið 1928 varði Dr. Jón ritgerð fyrir doktorsgráðu í lögum við háskólann í Osló. Ritgerðin nefndist: „Grönlands rettsstilling i middelalderen“. Tveimur árum áður, það er 1926, hafði Jón gerst stórkaupmaður, en innan tíðar gaf hann þó kaupmennskuna upp á bátinn og sneri sér að því verkefni sem áttu hug hans – að rannsaka og safna heimildum til sögu Grænlands og réttarstöðu. Jón er einnig hvað þekktstur fyrir öll þau mörgu rit sem hann skrifaði um réttartilkall Íslendinga til Grænlands. (Heimild: Wikipedia)

Ástand: gott

ATH! Við getum sýnt þetta glæsilega verk (á höfuðborgarsvæðinu) ef óskað er eftir því.

Réttarstaða Grænlands nýlenda Íslands - Jón Dúason 1928 doktorsritgerð

kr.8.000

1 á lager

Vörunúmer: 8502935 Flokkar: , Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,7 kg
Ummál 17 × 6 × 22 cm
Blaðsíður:

1152 (bæði bindin) I. bindi bls.: 768, II. bindi bls.: 383 ATH! Bæði bindin hafa verið bundin inn í bókakápu

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni án hlífðarkápu

Útgefandi:

Ísafold

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1947-1955

Höfundur:

Jón Dúason (Doktorsritgerð Háskólann í Osló 1928)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Rjettarstaða Grænlands nýlendu Íslands – Jón Dúason”