Landkönnun og landnám íslendinga í vesturheimi

Þetta frábæra verk Landkönnun og landnám íslendinga í vesturheimi kom upphaflega út í þremur hlutum. En hér hafa öll bindin verið bundin inn saman.

  1. hlutinn er 768 blaðsíður og kom út árið 1941
  2. hlutinn er 256 blaðsíður og kom út árið 1943
  3. hlutinn er 456 blaðsíður og kom út árið 1944

Verkið er glæsilegt í alla staði með t.d. myndum, kortum og töflum.

Dr. Jón Dúason heitir fullu nafni Dr Jón Norðmann Dúason (30. júlí 1888 – 5. maí 1967) var íslenskur hagfræðingur og fræðimaður sem hafði einstaka yfirsýn yfir tengsl Íslendinga við Grænland og hélt fram ríkri réttarstöðu Íslendinga til ítaka þar í landi.

Dr. Jón fæddist í Langhúsum í Haganeshreppi í Skagafirði. Hann lauk stúdentsprófi árið 1913 og stundaði nám í samvinnufélagsfræðum (þjóðfélagsfræði) við Hafnarháskóla í Danmörku og Skotlandi. Eftir það stundaði hann hagfræði og varð cand. polyt. í Kaupmannahöfn árið 1919. Hann stundaði því næst nám í bankamálum í Bretlandi og Norðurlöndum og var nokkur ár starfsmaður ríkis og borgar í Höfn. Árið 1928 varði Dr. Jón ritgerð fyrir doktorsgráðu í lögum við háskólann í Osló. Ritgerðin nefndist: „Grönlands rettsstilling i middelalderen“. Tveimur árum áður, það er 1926, hafði Jón gerst stórkaupmaður, en innan tíðar gaf hann þó kaupmennskuna upp á bátinn og sneri sér að því verkefni sem áttu hug hans – að rannsaka og safna heimildum til sögu Grænlands og réttarstöðu. Jón er einnig hvað þekktstur fyrir öll þau mörgu rit sem hann skrifaði um réttartilkall Íslendinga til Grænlands. (Heimild: Wikipedia)

Ástand: gott

ATH! Við getum sýnt þetta glæsilega verk (á höfuðborgarsvæðinu) ef óskað er eftir því.

Landkönnun og landnám íslendinga í vesturheimi - Jón Dúason 1941-1944

kr.8.000

1 á lager

Vörunúmer: 8502936 Flokkar: , Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,8 kg
Ummál 17 × 6 × 22 cm
Blaðsíður:

1480 (öll 3 bindin) I. bls. 768, II. bls.: 256 og III. bls.: 456 +myndir +kort +töflur

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni án hlífðarkápu

Útgefandi:

Ekki getið

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1941-1944 (I. 1941, II. 1943 og III. 1944)

Höfundur:

Jón Dúason

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Landkönnun og landnám íslendinga í vesturheimi – Jón Dúason 1941-1943”