Ráð handa kvíðnum börnum

Fyrir fjölskyldur barna og unglinga sem glíma við kvíða

Flest börn hafa einhvern tíma verið myrkfælin, mörg börn óttast að skrímsli leynist undir rúminu þeirra – en sum börn, eða um tíunda hvert barn, eru haldin meiri kvíða en almennt gildir, sem getur haldið aftur af þeim og valdið því að þau njóti ekki bernsku sinnar sem skyldi.

Bók þessi gefur ýmsar hagnýtar og gagnreyndar leiðir til kvíðastjórnar. Foreldrar og aðrir sem koma að uppeldi barna læra hér hvernig má hjálpa börnum við að ná tökum á áhyggjum og ótta og stuðla þannig að bættri líðan þeirra.

Bókin, sem hlaut viðurkenningu félags um hugræna atferlismeðferð í Bandaríkjunum (ACBT) í flokki sjálfshjálparbóka, fjallar meðal annars um:

  • Hvernig kenna má börnum að „hugsa eins og spæjarar“ svo að þau geti borið kennsl á óraunhæfar áhyggjur.
  • Hvernig best er að bregðast við þegar börn verða hrædd.
  • Hvernig fá má börn smátt og smátt og varfærnislega til að takast á við kvíðavalda sína.
  • Hvernig hjálpa má börnum við að tileinka sér mikilvæga félagsfærni.

Bókin Ráð handa kvíðnum börnum er skipt niður í 10 kafla, þeir eru:

  • Hvað er kvíði
  • Áhrif kvíða á hugsanir og tilfinningar
  • Að læra að hugsa af meira raunsæi
  • Uppeldi barna sem glíma við kvíða
  • Að horfast á við óttann til að vinna bug á honum
  • Ferli raunsærrar hugsunar og kvíðastiga einfaldað
  • Kvíðastigar endurbættir
  • Félagsfærni og örugg framkoma
  • Staðan metin
  • Hugað að framtíðinni
  • Viðauki

Ástand: gott ástand

Ráð handa kvíðnum krökkum - Fyrir fjölskyldur barna og unglinga sem glíma við kvíða. Tourette-samtökin á Íslandi 2016

kr.2.600

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,720 kg
Ummál 15 × 3 × 23 cm
Blaðsíður:

314 +myndir

Heitir á frummáli

Helping your anxious child : a step-by-step guide for parents

ISBN

9789979951865

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Tourette-samtökin á Íslandi

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2016

Íslensk þýðing

Örnólfur Thorlacius, Sigrún Gunnarsdóttir

Höfundur:

Ann Wignall, Heidi Lyneham, Ronald M. Rapee, Susan H. Spence, Vanessa Cobham

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ráð handa kvíðnum krökkum – fyrir fjölskyldur barna og unglinga sem glíma við kvíða”