Óbærilegur léttleiki tilverunnar
Dag einn stendur þjónustustúlkan Teresa í dyragættinni hjá Tómasi lækni í Prag og er komin til að vera. Kvennagullið Tómas tekur henni opnum örmum. En framhaldið er ekki á hans valdi – þau eru leiksoppar ytri afla eins og heimaland þeirra, Tékkóslóvakía. Stjórnmál, heimspeki og kynlíf tvinnast saman með eftirminnilegum hætti og frásögnin er krydduð kímni sem afhjúpar alræðisvaldið í sínum grátbroslegu myndum. . (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.