Náttúruvörur fyrir húð og hár
Bókin Náttúruvörur fyrir húð og hár er skipt niður í kafla sem fjalla um mismundandi meðferðir, eins og andlitssnyrtingu, fótsnyrtingur, handsnyrtingu og líkamssnyrtingu. Að auki er fjallað um sólarvörn, notaleg böð, nuddolíur og ungbarnavörur. Bókin hefur á að geyma fjölda uppskrifta.
Bókinni er ætlað að miðla þekkingu um hvernig þig getið sjálf búið til einfaldar og náttúrulegar snyrtivörur sem veita bæði vellíðan og vitund um hvað þig berið á húð og hár.
Í daglegu annríki er mikilvægt að fá dálitinn tíma fyrir sjálfan sig. Gefið ykkur tíma til að hægja aðeins á, hlynna að líkamanum og leyfið kyrrðinni að síga inn í sálina.
Bókin Náttúruvörur fyrir húð og hár er skipt niður í tíu kafla, þeir eru:
- Gott að vita
- innihald og virk efni, ofnæmisprófun, flöskur og krukkur, umbúðir, persónulegir merkimiðar og áhöld og útbúnaður
- Njótið baðsins – útbúið eigin heilsulind
- baðsalt með rósailmi, baðbombur, freyðibað með appelsínu- og límónuilmi, myntufreyðibað, ilmandi pokar í baðvatnið, baðolía með rósa- og sandalviðarilmi, baðolía með rósmarín og lofnarblómi, baðbombur með ylang-ylang, baðbombur með rósaviðarilmi og baðsalt frá Provence
- Líkamssnyrting
- fljótandi sápa með lofnarblómailmi, sápa fyrir hendur og líkama, appelsínusápa með morgunfrú, líkamsskrubb með rósmarín og piparmyntu, líkamsskrubb með appelsínu, límónu- og þistilskrubb, svitalyktaeyðir með framandi angan, húðmjólk með bergamot- og rósailmi, rakakrem með vítamínum, morgunfrúarsmyrsl, feitur áburður og tígissmyrsl
- Andlitssnyrting
- hreinsikrem fyrir andlitið, skrúbbkrem fyrir andlitið, andlitsvatn með piparmyntu, e-vítamínkrem og húðmjólk með aloe vera, rakakrem með alove vera og sítrus, krem fyrir kalda daga, hafragrjónamaski, varasalvi með appelsínu- eða myntu og varaáburður með tröllatré og myntu
- Sólarvörn
- sólarvörn, sólkrem stuðull 20, sólmjólk stuðull 8, varasalvi með sólvörn og fljótandi kælikrem (aftersun)
- Handsnyrting
- fingrabað með sítrónu, handáburður með ilmi að eigin vali og nærandi handáburður
- Fótsnyrting
- baðsalt fyrir fótabað, skrúbbkrem með apríkósukjarnamjöli, fótakrem gegn svita og fótakrem með tetrésolíu
- Hársnyrting
- sjampó fyrir þurrt hár, sjampó með harmony-ilmi, sjampó fyrir alla fjöskylduna, sjampó fyrir venjulegt hár, silkihárnæring með rósa- og sítrónuilmi, djúpnæring með olíu og skyndihjálp fyrir þurrt og skemmt hár
- Nuddolíur
- tælandi nuddolía streitulosandi nuddolía, feit nuddolía með tröllatré og piparmyntu, nuddstykki með grænum jurtum og nuddstykki fyrir þreytta vöðva
- Ungbarnavörur
- ungbarnasjampó, ungbarnakrem, ungbarnasmyrsl, nuddolía með lofnarblómi, nuddolía með e-vítamíni og húðmjólk fyrir ungbarnið
- Eigin athugasemdir
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.