Morðið í Hæstarétti
Falleg leikkona með vafasama fortíð finnst myrt á skrifstofu hæstaréttardómara og sýna upptökur úr öryggismyndavélum dómarann og hina myrtu ganga saman inn í hús hæstaréttar skömmu fyrir morðið. Hann leitar til lögfræðingsins og kjarnakonunnar Stellu Blómkvist og nú reynir á hana að komast til botns í málinu. Stella er úrræðagóð og kallar ekki allt ömmu sína en lendir iðulega upp á kant við góðkunningja sína, lögregluna. Æsispennandi sakamálasaga eftir dularfyllsta rithöfund landsins. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.