Laðaðu til þín það góða

Blómstraðu í einkalífi og starfi

Sumir virðast ævinlega vera sólarmegin í lífinu og með bros á vör á meðan erfiðleikarnir leita aðra stöðugt uppi. En getur verið að þar vegi aðstæðurnar ekki endilega þyngst heldur viðhorf okkar sjálfra?

Í þessari áhugaverðu og uppbyggilegu bók fjallar Sirrý um fjölmarga þætti daglegs lífs, framkomu okkar hvert við annað og hvaða augum við lítum á tilveruna. Textinn er í senn lipur, lifandi og persónulegur og er hér meðal annars að finna upplýsandi reynslusögur, hagnýt verkefni og notadrjúg hollráð.

Eftir mörg ár sem vinsæl fjölmiðlakona sendir Sirrý nú frá sér sína fyrstu bók. Hún er félags- og fjölmiðlafræðingur að mennt og hefur haldið fyrirlestra og námskeið af ýmsu tagi um mannleg samskipti og leiðir til að lifa hamingjuríkara lífi.

Verum okkar eigin farastjórar í lífinu. Eyðum ekki tímanum í að aka í austur þegar við ætlum í vestur. (heimild: baksíða bókarinnar)

Ástand: gott bæði innsíður og kápa, höfundur hefur merkt bókina á saurblaðið.

Laðaðu til þín það góða

kr.1.000

Ekki til á lager

Vörunúmer: 800501010 Flokkur: Merkimiðar: , , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,294 kg
Ummál 19 × 15 × 1,5 cm
Blaðsíður:

191

ISBN

9789935440167

Kápugerð:

Kilja óbundin

Útgefandi:

Veröld

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2012

Hönnun:

Lóa Auðunsdóttir (hönnun og umbrot), Birna Geirfinnsdóttir (hönnun og umbrot)

Höfundur:

Sigríður Arnardóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Laðaðu til þín það góða – Ekki til eins og er”