Jón G. Sólnes
Segir frá viðburðaríkri og stormasamri ævi
Jón G. Sólnes er nafn, sem allir þekkja. Hann er harðsvíraðasti kapítalistinn í Sjálfstæðisflokknum, fyrrverandi bankastjóri á Akureyri, Akureyrameistari í bæjarstjórnarsetu, fyrrverandi þingmaður. Jón er jafnframt persónugervingur umdeildustu fjárfestingar á Íslandi hin síðari árin, Kröfluvirkjunar.
Hann hefur verið sakaður um mútuþægni og alls kyns spillingu, en alltaf staðið slíkar ásakanir af sér. Oftar en einu sinni kröfðust pólitískir andstæðingar þess, að hann segði af sér þingmennsku.
En það var hans eiginn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, sem batt enda á pólitískan feril Jóns – um stund. Árið 1979 var hann sakaður um fjárdrátt og flokksfélagar hans þökkuðu honum hálfrar aldar starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn með því að sparka honum út af framboðslista flokksins. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Jón G. Sólnes segir frá viðburðaríkari og stormasamri ævi eru 10. kaflar, þeir eru:
- Aðfaraorð
- Frá Ísafirði til Akureyrar
- Alvara lífsins hefst – Bankaárin
- Á braut stjórnmálanna
- Í bæjarstjórn Akureyrar
- Úr bæjarstjórn á Alþingi
- Sparkað út eftir hálfa öld
- Kröfluvirkjun
- Sleggjudómar um pólitíska samferðamenn
- Öldungurinn ungi
- Lokaþankar
- Viðauki
- Nafnaskrá
Ástand: gott, lausakápan þreytt
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.