Ingólfur á Hellu – umhverfi og ævistarf
Í þessu síðara bindi endurminninga sinna heldur Ingólfur Jónsson fyrrum alþingsmaður og ráðherra áfram að segja sögu sína, sem jafnframt er saga þjóðarinnar á þessum tímna. Í fyrra bindi var þar staldrað við, sem myndun Viðreisnarstjórnarinnar var orðin að veruleika. Í þessu bindi rekur Ingólfur síðan sögur Viðreisnarinnar og stjórnmálaafskipti sín frá því um 1960 fram á þennan dag.
Viðreisnartímabili, sjöundi áratugurinn, er ótvírætt mesta framfaraskeið íslensku þjóðarinnar á þessari öld. Þá tók allt þjóðlífið svo stórstígum framförum, að engum öðrum tíma verður við jafnað. Á Viðreisnartímabilinu gengu Íslendingar loks til fulls inn í tuttugustu öldina. Ingólfu var ráðherra og alþingismaður allan tímann, og því er ómetanlegur fengur að frásögn hans um þennan tíma, ekki síst vegna þess að áður hafa ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í Viðreisnarstjórninni ekki fjallað um þennan tíma á svo rækilega hátt. Tugir manna koma við sögu í þessari bók, allir helstu áhrifamenn þjóðarinnar á síðari árum, og margir þeirra eru enn í fremstu víglínu stjórnmálanna. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Ingólfur á Hellu umhverfi og ævistarf eru 24 kaflar
- Haldið áfram
- Meira um kjördæmamálið
- Viðreisnin undirbúin
- Landhelgismálið
- Átök um sexmannanefndina
- Átök
- Viðfangsefni á sviði landbúnaðarmála
- Stjórnarráðið
- Samgöngumál
- Nú segir frá orkumálum
- Ferðamál
- Framkvæmdastofnun, umdeild stofnun
- Í viðreisnarstjórninni, framhald
- Fáein orð um störfin á Alingi 1959-1971
- Flokksmálefni
- Ný vinstri stjórn
- Kosningar 1974
- Þingmennsulok mín
- Á heimaslóðum
- Þankabrot um ýmislegt
- Svipmyndir úr fórum samtíðarmanna
- Lokaorð bókarhöfundar
- Kosningaúrslit í Suðurlandskjördæmi 1963-1974
- Skrá um heimildir. Leiðréttingar. Nafnaskrá …
Ástand: gott bæði innsíður og kápuefni.