Gróska í grænum lit
Vorið og sumarið minna okkur á að grænt er litur lífsins. Þá vaknar gróðurinn eftir langan vetrardvala og pottaplöntur, garðar, engi og tún taka á sig fallegan grænan lit eftir litlausa mánuði vetrarins.
Þessi skemmtilega bók Vöku og Blómaklúbbsins í bókaflokknum Allt um inniplöntur fjallar einmitt um það hvernig lífga má heimili og umhverfi með grænum gróðri. Hér er fjallað um nýstárlegar leiðir til að velja saman plöntur í potta og ker, hvar á að staðsetja þær og hvernig á að hirða um þær. En hér er ekki aðeins fjallað um pottaplöntur og þykkblöðunga, heldur einnig ýmsan annan gróður svo sem grös og lauka. Þá er sýnt hvernig útbúa má snortrar og upplífgandi grænar skreytingar.
Falleg og lífleg bók fyrir alla þá sem vilja glæða heimilið lífi og hlýju. (heimild: bakhluti bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.