Englar – af öllum stærðum og gerðum
Englar úr pappír, leir, skeljum, hnetum eða perlum, sumir klæddir í blúndur, borða og glansefni, aðrir látnir njóta sín óskreyttir. Svoleiðis englar er hægt að hafa uppi við allan ársins hring. Og uppskriftir af slíkum englum er að finna í þessari bók.
Fremst í bókinni eru kynnt mismunandi efni og aðferðir fyrir englahöfuð og hár, vængi, búka, hendur og fætur. Aftur í bókinni er sýnt með teikningum og leiðbeiningum hvernig margir englar eru búnir til, stig af stigi. Áhöld sem til þarf eru góð klípitöng fyrir vír, límbyssa, skæri og í sumum tilvikum saumavél.
Hvort sem farið er nákvæmlega eftir uppskriftunum, þær einfaldaðar eða þróaðar, þá er um að gera að byrja! (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.