Elly ævisaga Ellyjar Vilhjálms

Elly Vilhjálms var um sína daga dáðasta söngkona þjóðarinnar og list hennar tengist því besta sem til er í íslenskri dægurtónlist. Söngurinn var fágaður, túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin mjúk og hlý. Svo vel vandaði hún til verka að allt hljómaði þetta eins og hún þyrfti ekkert fyrir því að hafa. Tilviljun réð því að Elly byrjaði að syngja á dansleikjum. Sjálf ætlaði hún sér að verða rithöfundur og leikkona, en sautján ára tók hún þátt í söngprufu sem KK-sextettinn efndi til og þá voru örlög hennar ráðin. Reynslan var hennar skóli og vinsældir hennar miklar þrátt fyrir andstreymið sem fylgdi því að fást við dægurtónlist á árum áður, þá list sem margir litu hornauga. Elly var dul að eðlisfari og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna. Því varð líf hennar stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti sjaldan um að svara. Hver var hún, þessi kona sem heillaði karlmenn á skemmtistöðum og vakti afbrýðisemi kvenna, gekk þrisvar í hjónaband, drakk forboðið snákablóð og smyglaði sögufrægum apa til Íslands? Margrét Blöndal segir ævisögu Ellyjar Vilhjálms og leitar víða fanga eftir heimildum. Hér er sögð heillandi saga af konu sem bjó yfir óræðri dulúð og töfraði marga, konu sem aldrei gafst upp, sjálfstæð til síðasta dags. (Heimild: Bókatíðindi)

Bókin Elly ævisaga Ellyjar Vilhjálms, eru 10 kaflar +viðauka, þeir eru:

  • Af lífs og sálar kröftum
  • Í Merkinesi
  • Skólaár á Laugarvatni
  • Söngkona stígur á sviði
  • Árin með Eyþóri
  • Hljómsveitarlíf og nýtt hjónaband
  • Ofan af hljómsveitarpallinum
  • Fjölskyldulíf í Fossvogi
  • Hverful er gæfan
  • Aftur til gömlu áranna
  • Ég hefði gert þetta öðruvísi
  • Viðauki
    • Eftirmáli
    • Tilvísanir til heimilda
    • Heimildaskrá
    • Hljómplötuskrá
    • Myndaskrá
    • Nafnaskrá

Ástand: gott

Elly Ævisaga Ellyjar Vilhjálms - Margrét Blöndal

kr.1.800

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,550 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

205 +myndir +nafnaskrá: bls. 202-205 +hljómplötuskrá: bls. 186-198

ISBN

9789935900883

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Sena

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2012

Hönnun:

Guðjón Ingi Hauksson (umbrot), Villi Warén (kápuhönnun)

Ljósmyndir:

Kristján Magnússon (ljósmynd af Elly Vilhjálms á kápu), Ragnheiður Arngrímsdóttir (ljósmynd af höfundi)

Höfundur:

Margrét Blöndal

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Elly ævisaga Ellyjar Vilhjálms”