Eldhúsmyndir fyrir textíl, pappír og tré
Skemmtilegar eldhúsmyndir er hægt að nota til að skreyta ótrúlegustu hluti; teppi og veggmyndir, tehettur og púða, kort og snaga. Og ekki skortir hugmyndirnar í þessa bók
Hér er að finna ýmiss konar tækni, allt frá bútasaumi, servíettuföndri og ásaumi til málunar og kortagerðar.
Í sumum uppskriftunum er mismunandi tækni blandað saman á sérlega skemmtilegan hátt: Kennt er t.d. að búa til veggteppi þar sem einn hluturinn er gerður úr marglitu efni og festur á grunninn með straumlimi, annar er saumaður út með útsaumsgarni og sá þriðji gerður úr servíettu.
Í öllum uppskriftum eru gamlar spýtur notaðar sem grunnur fyrir eldhúsmyndirnar og þær málaðar á og svo skreyttar með álímdum textílrósum. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Eldhúsmyndir fyrir textíl, pappír og tré eru 30 verkefni, þau eru:
- Um munstur og leiðbeiningar
- Gardína úr blúnduefni
- Bútar í líflegu litum
- Teppi úr flóneli
- Teketill, bolli og kaka
- Aðferð við ásaumsmyndir
- Púðasaumur skref fyrir skref
- Tebollar í stafla
- Berjaskál og mjólkurkanna
- Rómantísk tehetta
- Morgunverðartehetta
- Tetími
- Diskamotta með bolla
- Bollar og könnur
- Púði með krúsum
- Eldhúshilla
- Textílmálun, útsaumur og …
- Blá baksturmynd
- Rauð bakstursmynd
- Rjómakanna og sykurkar
- Tvær krúsir og þrír bollar
- Skál, stór og lítill bolli
- Mynd með snögum
- Servíettumyndir
- Myndir á gamlar spýtur
- Skál með eggjum
- Snagar í eldhúsið
- Mósaíkrammi úr eggjaskurn
- Kort með kökum og kaffi
Ástand: gott, bæði innsíður og kápa eru góð.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.