Draugar, svipir og dularfull fyrirbrigði
Eins og nafn bókarinnar ber með sér fjallar hún um ýmsa yfirnáttúrlega atburði. Atburði sem ómögulegt er að skýra, eru oft ótrúlegir en samt sem áður sannir. Hér segir frá mögnuðum draugagangi bæði til sjós og lands, undrun og ógnun. Höfundur bókarinnar leituðu víða fanga við efnisöflun í bókina og það var eftir þeim haft að það hefði komið þeim á óvart hversu margt fólk hefði orðið fyrir dulrænni reynslu á einn eða annan hátt, hve lífseigar sögur af draugum, svipum og dularfullum fyrirbrigðum væri og hversu víða slík fyrirbrigði hefðu komið við sögu. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Draugar, svipir og dularfull fyrirbrigði er skipt niður í 7 kafla, þeir eru:
- Hefndarhugur
- Draugabæli
- Undur og ógnir
- Sjódraugar
- Fardraugar
- Vofur af valdaættum
- Vinir og elskhugar í vofulíki
Ástand: gott, innsíður og hlífðarkápan góð
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.