Benedikt Strandapóstur

Benedikt Benjamínsson, sögumaður bókarinnar var um aldarfjórðungsskeið Strandapóstur. Hann hóf starf sitt á hörðu ári 1918 og fór þá frá Stað í Hrútafirði að Árnesi í Trékyllisvík, seinna alla leið norður til Ófeigsfjarðar. Um norðurhluta Strandasýslu var á þeim árum órudd leið, víða torfær og hættusöm og því enginn veifiskata vegur.

Frásögn Benedikts er trú heimild þeirra lífshátta, sem útskagabúinn varð að temja sér ætti hann að komast óbrotinn gegnum önn aldarfarsins. Hann lætur hvergi mikið yfir sínum hlut, en atburðir og aðstæður bera starfi hans bezt vitni.

Saga hans er jafnframt bort úr sögu margra merkra samtíðarmanna, því oftast var hann leiðsögumaður flestra þeirra er lögðu leið sína um útskaga þennan. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Barnæska Benjamíns

Mín var ævibyrjun bág,
böndum reifa klæddur.
Niðursettur sveit var á
sama dag og fæddur.

Höf.: Benjamín (faðir Benedikts, bls. 9)

Ástand: gott

Benedikt strandpóstur - Þorsteinn Matthíasson

kr.1.400

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8501718 Flokkar: , Merkimiðar: , , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,420 kg
Ummál 15 × 2 × 22 cm
Blaðsíður:

167 +myndir

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Fróði

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1971

Hönnun:

Bjarni Jónsson (káputeikning)

Höfundur:

Þorsteinn Matthíasson (skráði)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Benedikt Strandapóstur – Ekki til eins og er”