Ásta málari
Saga af óvenjulegu lífi og baráttu Ástu Árnadóttur
Líf Ástu Árnadóttur, sem jafnan var kölluð Ásta málari, var eitt óslitið ævintýr. Hún fæddist í Narfakoti í Njarðvíkum 1883, en fluttist á miðjum aldri til Vesturheims og var búsett þar til dauðadags 1955. Atorka Ástu og áræði var með ólíkinum. Hún gerðist húsamálari, svo að hún fengi kaup á við karlmenn og gæti stutt móður sína, sem varð ung ekkja með stóran barnahóp. Barátta hennar á þessu sviði hlýtur að teljast athyglisverð. Hún tók sveinspróf í málaraiðn í Kaupmannahöfn og meistarapróf í sömu grein í Hamborg. Hún er fyrsta íslenzka konan sem tekur próf í iðngrein, og fyrsta konan sem tekur meistarapróf í málaraiðn, ef ekki í öllum heiminum þá að minnsta kosti í Evrópu. En ef til vill mun persónusaga Ástu vekja mesta athygli. Hún segir frá lífi sínu af óvenjulegri hreinskilni og einlægni . (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Ásta málari eru 23 kaflar, þeir eru:
- Málaðu nú, barn
- Fólkið í húsinu
- Ekkja með tíu börn
- Vinnukona fyrir austan
- Vaðmál í sumarkaup
- Gamanleikari af guðs náð
- Málaranemi í Reykjavík
- Til kóngsins Kaupinhafnar
- Undir verndarvæng Betaníu
- Sveinspróf í ráðhúsinu
- Erfiðishendur
- Frúin í Hamborg
- Á móti straumnum
- Meistarapróf
- Óskir beztu allra þjóðar
- Húsfreyjur mótmæla
- Rigningasumarið mikla
- Sólskinsblettur
- Þrettán börn í Ameríku
- Lífið í Tanganum
- Eldsvoði
- Hús reist – úr engu
- Lastaðu ei laxinn
- Viðauki
- Eftirmáli
- Heimildaskrá
- Nafnaskrá
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.