Álfasteinninn
Systkynin fjögur á Hóli eiga sér leyndarmál sem fáir vita af nema afi og amma. Í klettinum rétt við húsið þeirra í útjaðri þorpsins býr heil álfafjölskylda og álfabörnin eru skemmtilegustu leikfélagar sem hægt er að hugsa sér. Töfrasteinar álfkonunnar geta líka hjálpað til við að uppfylla óskir systkinanna en þegar Álfasteinninn er í hættu duga engar óskir. Álfkonan verður sjálf að taka til sinna ráða. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott