5:2 mataræðið

Einföld leið til að léttast og öðlast heilbrigðara og lengra líf.

Þetta er bókin sem hrinti 5:2 bylgjunni af stað. 5:2 er enginn megrunarkúr heldur einföld, fljótvirk og heilsusamleg aðferð til að grennast og bæta heilsuna.

Fimm daga vikunnar borðar þú eins og vanalega og hugsar ekkert um hitaeiningafjöldann en tvisvar í viku færðu þér góðan og girnilegan en hitaeiningasnauðan mat — konur 500 hitaeiningar, karlar 600. Líkaminn venst þessu fljótt og það er auðvelt að fylgja mataræðinu þegar maður veit að daginn eftir er hægt að borða allt sem hugurinn girnist.

Í bókinni eru einfaldar uppskriftir með nákvæmum útreikningum á hitaeiningum, hitaeiningatöflur, upplýsingar um næringu og heilsu, góð ráð frá læknum og ábendingar frá fólki sem hefur fylgt 5:2-mataræðinu með frábærum árangri.

Michael Mosley er læknir sem hefur gert fjölda vísinda- og heilsuþátta fyrir BBC og setti fyrst fram kenningar sínar um lotuföstu og 5:2-mataræðið í heimildaþættinum Eat, Fast & Live Longer, sem vakti gífurlega athygli. Mimi Spencer er blaðamaður sem hefur unnið fyrir ýmis bresk blöð og tímarit og er höfundur bókarinnar 101 Things to Do Before You Diet. (heimild: bakhlið bókarinnar)

Bókin er í sex köflum auk tilvísanir og atriðisorð, þeir eru:

  1. Föstuvísindi
  2. Lotufasta í framkvæmd
  3. Matseðlar
  4. Reynslusögur
  5. Vitnisburðir
  6. Hitaeiningalisti
  7. Tilvísarnir og atriðisorð

Ástand: bæði innsíður og kápa mjög gott

5:2 mataræðið - einföld leið til að léttast

kr.1.200

2 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,268 kg
Ummál 14 × 2 × 21 cm
ISBN

9789979222590

Blaðsíður:

207, Atriðisorð: bls. 203-207

Kápugerð:

Kilja óbundin

Heitir á frummáli

The fast diet

Útgefandi:

Vaka-Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2014

Ljósmyndir:

Shutterstock (ljósmyndir á kápu)

Hönnun:

Halla Sigríður Margrétardóttir (hönnun á kápu)

Íslensk þýðing

Karl Emil Gunnarsson

Höfundur:

Dr. Michael Mosley, Mimi Spencer

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “5:2 mataræðið – einföld leið til að léttast”