Íslenskur annáll 1987
Samtíðarsaga í sérflokki
Íslenskur annáll 1987 sem nú kemur út, er níunda bókin í bókaflokknum Íslenskur annáll. Að vanda er bókin prýdd fjölda mynda og er um fjórðungur þeirra í lit. Þetta er eini bókaflokkurinn sem fjallar eingöngu um íslenskt efni og kemur út á hverju ári. Að þessu sinni er fjallað um árið 1987 og leitast við að sýna yfirbragð þess á sem gleggstan hátt. Að mestu er stuðst við dagblöð og tímarit frá þessum tíma, atburðum er raðað í rétta tímaröð og frásagnir hafðar eins og þær koma mönnum fyrir sjónir þegar atburðirnir áttu sér stað.
Árið 1987 var á margan hátt eftirminnilegt. Voveifilegir atburðir svo sem sjóslys, flugslys og eldsvoðar voru óvenju tíðir. Þar má sjá aðdraganda og síðar tilurð Borgaraflokksins og merki um að veldi Sambands íslenskra samvinnufélaga sé að veikjast.. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Íslenskur annáll 1987 er með nafnaskrá: bls. 312-316 og efnisyfirlit [í stafrófsröð]: bls. 317-318
Ástand: gott, er í upphaflegu plastumbúðum
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.