Viðskiptabréf

Í bókinni er fjallað um viðskiptabréfsreglur. Megin markmið þeirra er að stuðla að því að framsalshafi fái framseldan þann rétt sem viðskiptabréf ber með sér og gera viðskipti með slík bréf auðveld og örugg. Reglurnar hafa í för með sér ákveðna áhættu bæði fyrir skuldara og eiganda bréfsins því þær geta leitt til skerðingar á réttindum þeirra beggja. Af þeim sökum er mikilvægt fyrir þá sem sýsla með viðskiptabréf, s.s. skuldabréf, að kunna skil á þessum reglum. Í ritinu er að finna afrakstur rannsóknar á helstu dómum sem kveðnir hafa verið upp í Hæstarétti fram til 1. janúar 2004 og varpað geta ljósi á efni og skýringu viðskiptabréfsreglna íslensks réttar um skuldabréf. Í ritinu er einnig vikið að viðskiptabréfsreglum sem fram koma í settum lögum og skýringu dómstóla á þeim. Þannig er fjallað sérstaklega um það hvernig viðskiptabréfsreglur horfa við rafrænt eignarskráðum verðbréfum (rafbréfum). (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Viðskiptabréf er skipt niður í 10 kafla + undirkaflar, þeir eru:

  • Formáli
  • Inngangur
  • Aðdragandinn að setningu tilskipunar frá 9. febrúar 1798 um áritun afborgana á skuldabréf
  • Hvaða bréf eru viðskiptabréf
  • Handhafabréf og nafnbréf
  • Mótbórutap skuldara
  • Réttingamissir þriðja manns
  • Skilyrði mótbárutaps og réttindamissis
  • Skilríkisreglan
  • Innlausnarréttur skuldara
  • Ógilding viðskiptabréfs
  • Viðauki
    • Heimildaskrá
    • Lagaskrá
    • Dómaskrá
    • Atriðisorðaskrá

Ástand: gott, ekkert krot né merkingar eru í bókinni. Notuð bók

Viðskiptabréf - Páll Hreinsson

kr.4.800

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,700 kg
Ummál 16 × 3 × 22 cm
Blaðsíður:

237 +myndir +lagaskrá: s.213-226 +dómaskrá: bls. 227-229 +atriðisorðaskrá: bls. 231-237

ISBN

9979825316

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Bókaútgáfan Codex

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2004 (1. útgáfa)

Hönnun:

Ólafur Th. Ólafsson (kápuhönnun)

Höfundur:

Páll Hreinsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Viðskiptabréf útgáfa 2004 – Páll Hreinsson”