Holtamannabók II, Ásahreppur

Holtamannabók II, Ásahreppur, er fjórða bókin í bókaflokki um nokkrar sveitir í Rangárvallasýslu þar sem rakin er saga bænda og húsmæðra frá fyrstu tíð til nútímans. Áður eru komnar út í þessum flokki bækur um Austur-Landeyjar, Landsveit og Holtahrepp, en í þessari bók segir frá þeim hluta Holtamannhrepps hins forna sem skipt var úr hreppnum árið 1892 og heitir enn í dag Ásahreppur. Gerð er grein fyrir æviferli, ættum og börnum ábúenda eftir því sem heimildir leyfa. Saga eignarhalds á jörðunum er sögð og gömul og ný landamerki skráð. Myndir af fólki og bæjum prýða bókina. Grunnurinn að þessari bók var eins og að öðrum bókum í flokknum lagður af Valgeiri Sigurðssyni fræðimanni á Þingskálum, en viðbætur eru unnar af Ragnari Böðvarssyni og Þorgils Jónassyni sagnfræðingi. Nauðsynlegt rit öllum áhugamönnum um byggðasögu og ættfræði. (Heimild: Bókatíðindi)

Verkið Holtamannabók II Ásahreppur eru 31 kaflar, þeir eru:

  • Kort af Ásahreppi
  • Orðskýringar
  • Formáli
  • Inngangur
  • Ljóð og nótur
  • Bæir í Ásahreppi
  • Boðleiðir
  • Áshreppur
  • Grasbýli og tómthús
  • Einstök íbúðahús
  • Áshverfi og Vetleifsholtshverfi
  • Vinnuhjú
  • Einstakar ættfærslur
  • Nokkur bæjarnöfn í Ásahreppi
  • Þjórsármótin
  • Sléttaland
  • Myndir
  • Nýju lærdómskverin
  • Heimavarnalið Levetzovs
  • Sparisjóðurinn
  • Hreppanefndir
  • Myndir
  • Holtamannaafréttur
  • Kort af afrétti
  • Myndir
  • Rithandasýnishorn
  • Mannfjöldi í Ásahreppi
  • Myndir
  • Heimildaskrá
  • Nafnaskrá

Ástand: gott, bæði innsíður og kápa

Holtamannabók II Ásahreppur - Valgeir Sigurðsson og Ragnar Böðvarsson

kr.4.500

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,3 kg
Ummál 18 × 4 × 25 cm
Blaðsíður:

xiv, 583 +myndir +kort +nótur +ritsýni +töflur +nafnaskrá: bls. 467-583

ISBN

9789979703518

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Ásahreppur

Útgáfustaður:

Útgáfastaður er ekki getið

Útgáfuár:

2007

Höfundur:

Ragnar Böðvarsson (viðbætur), Valgeir Sigurðsson (aðalhöfundur), Þorgils Jónasson (viðbætur)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Holtamannabók II – Ásahreppur”