Uppgötvaðu köllun þína með hjálp munksins sem seldi sportbílinn sinn
Hið sjö stiga ferli sjálfsuppgötvunarinnar
Dar Sandersen nýtur velgengni í starfi og virðist lifa hinui fullkomna lífi. En einn daginn hrynur veröld hans til grunna: Á eldhúsborðinu bíða hans skilaboð frá eiginkonunni um að hún sé farin frá honum með börnin þrjú. Þegar hann áttar sig á að sóknin eftir efnislegum gæðum, frægð og frama hefur svipt hann því sem mestu máli skiptir fyllist hann vonleysi og svartnætti. Hann er því kominn að taka líf sitt þegar orð berast til hans úr fjarska sem fá hann til að hætta við: „Líf þitt er gersemi og þú ert miklu meir en þig órar fyrir“.
Örlögin haga því þannig að Dar hittir Julian Mantle, munkinn fræga sem seldi sportbílinn sinn, og þá hefst nýr kafli í lífi hans. Með aðstoð Julians og sjálfsuppgötvunarstiganna sjö leggur Dar upp í vegferð til að endurheimta sjálfansig, læra að lifa lífinu til fullnustu og láta ljós sitt skína. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Uppgötvaðu köllun þína með hjálp munksubs sem seldi sportbílinn sinn er skipt niður í 12 kafla, þeir eru:
- Í andlegri neyð
- Leitandi finnur lærimeistara
- Leitandinn fræðist um gildi þess að hafa köllun og hvað hugtakið „örlög“ þýðir í raun og veru
- Leitandinn fræðist um glæpinn sem felst í því að svíkja sjálfan sig, og hvernig hann getur leyst sig úr fjörtunum
- Leitandinn fræðist um aðra mikilvægustu ákvörðun lífsins
- Leitandinn kynnist undrum og möguleikum
- Leitandinn fær leiðbeiningar hjá meisturunum
- Leitandinn tekur að umbreytast og endurmóta sjálfan sig
- Þolraun leitandans
- Leitandinn vaknar
- Hið sjö stiga ferli sjálfsuppgötvunarinnar
- Daglegu helgireglurnar fimm
Ástand: gott, mjög gott bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.