Þykkskinna – sunnlenskar þjóðsögur og þættir

Þykkskinna er úrval sagnaþátta og ljósmynda Helga Hannessonar frá Sumarliðabæ (1896 – 1989). Hér er sagt frá kunnum héraðsdraugum Rangæinga eins og Kotsmóra og Gunnu Ívars, kynntir til sögunnar hólbúar og huldar vættir auk þess sem fjöldi Rangæinga fyrri tíðar er leiddur fram á sjónarsviðið. Allar þessar persónur, menn og vættir, verða lesandanum ljóslifandi undir meitluðu orðfæri og frábærum frásagnarstíl Helga. Í bókinni eru um 170 ljósmyndir sem Helgi tók um og fyrir miðja 20. öld og varpa einstöku ljósi á horfinn aldarhátt. Í ljósmyndun var Helgi á undan sinni samtíð þar sem hann gerði sér far um að mynda hvunndagsleikann í mannlífi Rangæinga. Þáttum og myndum er hér fléttað saman auk þess sem mikið af stökum myndum prýða bókina milli þátta. Formála ritar Þórður Tómasson safnvörður í Skógum. (Heimild: Bókatíðindi)

Þykkskinna I. bindi útgáfuár 2003

  • Í bókinni eru um 170 ljósmyndir Helga frá fjóðra og fimmta áratug 20. aldar. Myndir sem varpa einstöku ljósi á herfinn aldarhátt.

Þykkskinna II. útgáfuár 2005

  • Bókina prýða einstakar ljósmyndir úr safni Helga en hann var á kaupfélagsstjóraárum sínum á Rauðalæk.

Þykkskinna III. útgáfuár 2006

  • Í æviminningum sínum bregður Helgi upp ljóslifandi lýsingum af baráttu fátækra Holtamanna við bráðapest, barnadauða og matarskort.

Ástand: bæði innsíður, harðakápa og lausa kápan góð. Ekki nafnamerkt né krot er í bókunum

Þykkskinna Sunnlenskar þjóðsögur og hættir

kr.4.200

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 2,3 kg
Ummál 16 × 9 × 24 cm
Blaðsíður:

765 (öll þrjú bindin) +myndir +ritsýni

ISBN

I. b. 9979960302 II.b 9979960310 III. b 9979960361

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Sunnlenska bókaútgáfan

Útgáfustaður:

Sellfoss

Útgáfuár:

I. b. 2003 II. b. 2005 og III. b. 2006

Höfundur:

Helgi Hannesson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Þykkskinna – sunnlenskar þjóðsögur og þættir I.-III. bindi”