Seiður lands og sagna III

Áfangastaðir suðvestanlands

Hér eins og í fyrri bókum í þessari ritröð er efnið tvískipt. Ljósmyndirnar sýna flestar ýmis brot af Suðvesturlandi en auk þeirra er brugðið upp eldri myndum. Í náttúru þessa landshluta er mjög ólíka fegurð að finna, allt frá brimssorfinni strönd Reykjaness og brennisteinshveri í Krýsuvík til hæsta foss landsins í Hvalfirði, stærsta hvers á jörðinni í Deildartungu, fegurðar Húsafells og Kaldadals.

Helstu áfangastaðir bókarinnar eru Herdísarvík, Krýsuvík, Grindavík, Reykjanes, Hvalsnes, Stafnes, Básendar og fyrrum byggð í Hraunum. Þarnæst er viðkoma á Elliðavatni, ýmsum stöðum við Esjurætur, á Hvalfjarðarströnd og í Botni, á Hvanneyri, Hvítárvöllum, Bæ, Reykholti og Húsafelli. Merkilegt og minnisstætt fólk er meginumfjöllunarefni í bókartextanum.

Áherzlan er á einstakar persónur sem standa uppúr. Við förum hingað og þangað um tímann, hittum Einar Benediktsson í Herdísarvík, Hallgrím Pétursson og Guðríði á Hvalsnesi, sjáum Kristján skrifara veginn á Kirkjubóli, hittum Benedikt Sveinsson assessor og frú Valgerði á Elliðavatni, kynnumst Búa Andríðssyni úr Kjalnesingasögu og merkum Kjalnesingum frá síðustu öld. Við Hvalfjörð rekumst við á Hörð Grímkelsson og Geir fóstbróður hans í Geirshólma, hittum Sveinbjörn allsherjargoða á Draghálsi og Magnús Stephensen á Leirá. Norðan Skarðsheiðar heimsækjum við þjóðhagann Þórð blinda á Mófellsstöðum, kynnumst skólahaldi Sigurðar Þórólfssonar á Hvítárbakka, lífsháttum og veizlum hjá Snorra Surlusyni í Reykholti; einnig merkum Húsfellingum, allt frá séra Snorra til brautryðjandans Kristleifs Þorsteinssonar og listamannsins Páls Guðmundssonar.

Ástand: gott

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,68 kg
Ummál 24 × 3 × 31 cm
ISBN

9979772344

Blaðsíður:

359 +Nafnaskrá bls 357-359 +myndir + teikningar +málverk

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Skrudda

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2004

Ljósmyndir:

Einar Einarsson [og fleiri]

Teikningar

Ásgrímur Jónsson [og fleiri]

Höfundur:

Gísli Sigurðsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Seiður, áfangastaðir suðvestanlands – Ekki til eins og er”