Saga Reykjavíkur – í þúsund ár 870-1870 seinni hluti

Hin glæsilega og eigulega ritröð um Sögu Reykjavíkur er nú til enda leidd með útgáfu þessara tveggja lokabinda verksins um tíu alda tímabilið frá 870 til 1870. Í fyrri hlutanum er m.a. farið yfir sögu landnáms og fyrstu byggðar á Íslandi, fjallað um þéttbýlismyndun og upphaf, ris og hnignun Innréttinganna á átjándu öld. Þar kemur margt spennandi í ljós, allt frá fyrsta verkfallinu á Íslandi til þorpsmyndunar í Reykjavík og fjallað er um mannréttindi og lífsbaráttu íbúanna. Í seinni hlutanum fer bærinn að taka á sig skýrari mynd höfuðstaðar. Horft er til mannlífs út frá ýmsum sjónarhornum, reynt að setja sig í spor stríðandi alþýðu jafnt sem veisluglaðra góðborgara og erlendra ferðalanga sem tóku að heimsækja land og þjóð í byrjun 19. aldar. Margar myndir sem teknar voru á Íslandi í árdaga ljósmyndunar eru birtar í bókinni og margvíslegar töflur og ítarupplýsingar eru dregnar fram í dagsljósið. Um leið eru efnisþættir tengdir samtímanum í nútímalegu myndmáli á einkar viðfelldinn hátt. Þannig bera bækurnar samtíma sínum vitni um leið og þær veita okkur innsýn í horfna heima. Í verkinu er reynt að glöggva sig á þróun atvinnulífsins um leið og fylgst er með sprotum nýrrar menningar, í menntamálum, stjórnmálum, leiklist, tónlist og félagsmálum. Saga Reykjavíkur er saga allra landsmanna og á heima á öllum íslenskum menningarheimilum. (Heimild: Bókatíðindi)

Bókin Saga Reykjavíkur í þúsund ár 870 til 1870 fyrri hluti, skiptist í 20 kafla, þeir eru:

  • Sjávaraflinn er hinn mesti bjargræðisvegur
  • Landnám nýrra samfélagshátta
  • Allir í verslun
  • Búðirnar fullar af fólki
  • Mylluvængir og hamarshögg
  • Verstöðin Reykjavík
  • Hafsins hvikuli fengur
  • Búfé og gróska í garðrækt
  • Búnaður og bæjarbragur
  • Hvergi vinna konur meira
  • Að eignast öflugan höfuðstað
  • Aðalstaður Íslands
  • Þingvellir eða Reykjavík?
  • Nú blása frelsisvindar
  • Bæjarfulltrúarnir nýju
  • Stórborg eins og Reykjavík
  • Fagur og íslenskur Ingólfsbær
  • Misjöfn lífsins gæði
  • Dáindis líflegt í Vík
  • Fagrar listir og félagslíf
  • Barnaskóli til framtíðar
  • Að vaxa og þroskast í stríði

Viðauki

  • Tilvísanir
  • Heimildaskrá
  • Nafnaskrá
  • Atriðisorðaskrá
  • Myndaskrá

Ástand: gott, ónotað með öllu

Saga Reykjavíkur í þúsund ár 870-1870 - seinni hluti - Þorleifur Óskarsson

kr.4.500

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 3,95 kg
Ummál 24 × 5 × 31 cm
Blaðsíður:

475 (viii) +myndir +teikningar +línurit +ritsýni +uppdrættir

ISBN

997910418X

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Iðunn bókaútgáfa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2002

Hönnun:

Ragnar Axelsson [et. al]

Höfundur:

Þorleifur Óskarsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Saga Reykjavíkur í þúsund ár 870 – 1870 seinni hluti”