Vatnsfjörður í Ísafirði

Þættir úr sögu Höfuðbóls og Kirkjustaðar

Í þessu riti segir af Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp frá upphafi norrænnar mannabyggðar fram undir lok 20. aldar. Vatnsfjörður er þekktur sögustaður, þar sátu misvitrir höfðingjar á miðöldum og lærdómsmenn í prestastétt á seinni öldum. Bókin er ætluð til fróðleiks, byggð á prentuðum sem óprentuðum ritheimildum og tekið mið af fornleifarannsóknum sem fram hafa farið á staðnum mörg undanfarin sumar. Frumkvæði að bókinni átti séra Baldur Vilhelmsson. Hann er síðastur merkra presta og prófasta sem búið hafa í Vatnsfirði og situr þar enn á friðarstóli ásamt eiginkonu sinni frú Ólafíu Salvarsdóttur. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Vatnsfjörður í Ísafirði eru 5 kaflar, þeir eru:

  • Aðfaraorð ritstjóra
  • Formáli
  • I. Vatnsfjörður – Höfuðból við Djúp
  • II. Vatnsfjörður – eignir og ítök
  • III. Vatnsfirððingar á miðöldum
  • IV. Vatnsfjarðarkirkja
  • V. Prestatal Vatnsfjarðarkirkju
  • Heimildir og styttingar
  • Nafnaskrá

Ástand: gott

Vatnsfjörðr í Ísafirði - Þættir úr sögu Höfðabóls og Kirkjustaðar - Guðrún Ása Grímsdóttir - Vestfirska forlagið 2012

kr.2.200

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,850 kg
Ummál 18 × 4 × 25 cm
Blaðsíður:

456 +myndir +ritsýni +nafnaskrá: bls. 425-456

ISBN

9789935430243

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Vestfirska forlagið

Útgáfustaður:

Brekka í Dýrafirði

Útgáfuár:

2012

Höfundur:

Guðrún Ása Grímsdótti (tók saman)

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Vatnsfjörður í Ísafirði – þættir úr sögu Höfuðbóls og Kirkjustaðar”