Rangvellingabók

Saga jarða og ábúðar í Rangárvallahreppi

Rangvellingabók er bók um byggðarsögu, ættfræði og persónusögu. Þar eru taldir allir bæir sem vitað er um að verið hafa í Rangárvallahreppi, rakin saga þeirra, getið eigenda, sagt frá landamerkjum og ítökum, og birtar lýsingar jarðanna frá ýmsum tímum. Skráðar eru æviskrár allra bænda sem vitað er um að verið hafi á jörðunum frá landnámsöld til vorra daga. Þar er getið ættar þeirra og greint frá maka og börnum. Sagt er frá helstu æviatriðum þeirra og lýsing er á allmörgum. Myndir eru af öllum þeim bændum og húsfreyjum sem hægt hefur verið að fá myndir af, alls á fimmta hundruð manns.

Rangvellingabók er bók allra þeirra sem kunnugir eru Rangárvallahreppi og íbúum hans og annara þeirra sem fræðast vilja um Rangárvelli. Rangvellingabók er einni bók allra sem áhuga hafa á byggðarsögu, ættfræði og persónusögu. (Heimildir: Bakhlið bókarinnar)

Rangvellingabók I. bindi

  • Formáli
  • Jarðatal og ábúenda
  • Bændur sem ekki er vitað hvar bjuggu
  • Nafnlaus eyðibýli
  • Afbrigði bæjarnafna og bæir án grasnytja
  • Hella
  • Mannfjöldi á bæjum
  • Skýringar bæjarnafna
  • Nokkrar tölur um dýrleika bústofn og fleira
  • Heimildaskrá
  • Nafnaskrá

Rangvellingabók II. bindi

  • Ekkert efnisyfirlit, en við skoðun kemur þetta í ljós
  • Jarðatal og ábúenda
  • Nokkur orð um bæjarnöfn á Rangárvöllum (546)
  • Nokkar tölur um dýrleika, bústofn og fleira (551)
  • Heimildaskrá
  • Nafnaskrá
  • Lagfæringar (680)

Ástand: bæði innsíður, kjölur og harðakápa góð, en lausa kápan orðin þreytt. Ekki nafnamerkt né krot er í bókunum

Rangvellingabók I.-II. bindi -saga jarða og ábúðar í Rangárvallahreppi

kr.4.200

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,5 kg
Ummál 16 × 5 × 24 cm
Blaðsíður:

680 (bæði bindin) +myndir +kort. I. bindi bls. 358, II. bindi bls. 322

ISBN

Ekkert

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Rangárvallahreppur

Útgáfustaður:

Hella

Útgáfuár:

1982 (1. útgáfa)

Höfundur:

Valgeir Sigurðsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Rangvellingabók I.-II. bindi – saga jarða og ábúðar í Rangárvallahreppi”