Nýju fötin keisarans

Nýju fötin keisarans er eitt af þekktustu ævintýrum H.C. Andersen. Hér segir frá keisara nokkrum sem hefur ekki áhuga á neinu nema fallegum fötum og eyðir mestum tíma sínum í fataskápnum. Dag nokkurn koma til hans tveir menn sem bjóðast til að sauma handa honum föt úr heimsins fegursta vefnaði.

Steingrímur Thorsteinsson (1831-1913) var þýðand af þessari bók. Steingrímur var mikilvirkur þýðandi og sneri meðal annars á íslensku Þúsund og einni nótt og þýddi Ævintýri og sögur eftir H. C. Andersen. Þá þýddi hann fjölda ljóða eftir ýmis frægustu skáld Evrópu og orti sjálfur í anda rómantísku stefnunnar. Var hann eindreginn fylgismaður Jóns Sigurðssonar í þjóðfrelsisbaráttunni og sýnir kvæði hans Vorhvöt vel afstöðu hans í stormum þeirra átaka.

Ævintýrið kom fyrst út í bókinni Eventyr, fortalte for Børn 1837.

Ástand: innsíður og kápan góð.

Nýju fötin keisarans - H C Andersen

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,320 kg
Ummál 27 × 1 × 25 cm
Blaðsíður:

28 myndir

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Heitir á frummáli

Kejserens nye klæder

Útgefandi:

Iðunn bókaútgáfa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1980

Teikningar

Ulf Löfgren

Íslensk þýðing

Steingrímur Thorsteinsson

Höfundur:

H. C. Andersen