Neró
Nero Claudius Caesar Augustus Germanicus (15. desember 37 – 9. júní 68) var fimmti og síðasti rómverski keisarinn úr ætt Júlíusar Caesars. Hann tók við krúnunni af Claudíusi frænda sínum, sem hafði ættleitt hann.
Í bók þessari skyggnist Michael Grant gagnrýnum augum gegnum mistur fornra sagna og ímyndana og bregður upp hlutlægri mynd af Neró sem manni og keisara. Neró stýrði hinu tröllaukna Rómaveldi á tímum mikillar auðlegðar og menningardýrðar og tók ekki í mál að ganga í slóðfornra hefða. Hann tók gríska siði framyfir rómverska, var upplýstur verndari myndlistar og fullur hrifningar á íþróttum, tónlist og leiklist.
Bókin Neró eru 14 kaflar, þeir eru:
- Uppdrættir, helstu atburðir
- Neró kemur til valda
- Keisaramóðir við völd
- Neró og hjálparmenn hans
- Dauði Agrippínu
- Keisarinn syngjandi, leikandi og akandi
- Kaldur veruleikinn í leifi keisara
- Útþensla og könnun
- Nýir ráðgjafar – ný keisarafrú
- Rómarbruninn mikli og kristnir menn
- Húsið gullna: listfegurð og óhóf
- Neró eins og hann sýndi sig
- Yfirstéttin sýnir tennurnar
- Uppreisn og sigur
- Endalokin
- Viðauki
- Viðbætur I: Neró í augum síðari kynslóða
- Viðbætur II: Heimildir um Neró
- Viðbætur III: Verðgildi peninga
- Rómarkeisarar 31 f.kr – 138 e.kr
- Tilvitnanir
- Meira að lesa
- Ættartölur
- Nafnaskrá
Ástand: gott